Harðkjarni er fyrst og fremst heimasíða þar sem hægt er að nálgast allar upplýsingar um íslensku rokk/metal/pönk senuna. Á harðkjarna vefnum má finna fréttir, plötudóma, umfjallanir, tónlist, fróðleg og ýmiskonar greinar (í viðbót við heilan helling af öðru dóti).
Í gegnum tíðina hefur harðkjarni (já eða dordingull.com) einnig staðið fyrir tónleikahaldi og í viðbót við það reynum við okkar besta að redda upptökum fyrir þau bönd sem hafa áhuga á því að taka upp (Jafnvel í formi ráðlegginga ogfleira). Á dordingull.com vefnum er að finna heilan helling af heimsíðum fyrir íslenskar rokksveitir bæði nýjar og gamlar.
Dordingull.com er líka útvarpsþáttur sem hægt er að hlusta á útvarpstöðinni XFM FM 91.1, í þættinum er hægt að hlusta á þá tónlist sem fjallað er um á vefnum, semsagt heljarinnar rokk, metal og hardcore veisla.
Endilega hafið samband ef þið hafið áhuga á því að hjálpa okkur, hvort sem það er með því að styrkja okkur fjárhagslega eða með því að skrifa greinar, umfjallanir eða hvað það sem ykkur langar til að gera. |